Skólareglur
Skólareglur
Skólareglur má finna í starfsáætlun Landakotsskóla á bls. 33-40: Starfsáætlun Landakotsskóla 2025-2026
Skólareglur Landakotsskóla í hnotskurn.
Almenn umgengni, samskipti og háttsemi:
Förum eftir fyrirmælum alls starfsfólks.
Notkun síma, myndavéla eða upptökutækja er óheimil á skólatíma.
Símar eru geymdir hjá öllum nemendum í læstum skápum. Nemendur setja símana í skápana í upphafi dags og gæta þess að slökkva á þeim áður. Í lok skóladags fá nemendur símana afhenta aftur. Ef nemendur mæta seint bera þeir ábyrgð á að afhenda símana. Samræmdar reglur eru um hvenær nemendur fá símana sína í tengslum við valhópa eftir hádegi á þriðjudögum og föstudögum. Nemendur nota farsímana í skólanum eingöngu með leyfi kennara. Ef foreldrar þurfa að ná í barn sitt er hægt að hringja á skrifstofu í síma 5108200. Ef nemendur þurfa að hringja geta þeir sömuleiðis fengið afnot af síma skólans.
Sýnum hvert öðru vinsemd, virðingu og tillitssemi.
Á unglingastigi skulu hurðir inn í skólastofur vera opnar í frímínútum.
Sýnum góða umgengni og borðum á svæðum sem til þess eru ætluð í skólanum.
Hendum öllu rusli í þar til gerðar fötur og flokkum það, nestisumbúðir og afganga af nesti skal þó taka með heim.
Forðumst hlaup og hnoð.
Förum úr skóm í anddyri og höldum á skónum að fatahengi, tökum ofan höfuðföt á kennslutíma og í matsal.
Við geymum yfirhafnir, húfur og útiskó í fatahengi.
Vegna slysahættu er notkun hvers kyns hjóla s.s. reiðhjóla, hjólabretta, hlaupahjóla, línuskauta og vélknúinna ökutækja óheimil á skólalóð á skólatíma.
Fyrrnefnd farartæki skulu geymd í hjólastöndum og vera læst á ábyrgð eiganda.
Samkvæmt lögum ber að nota þar til gerðan öryggisbúnað á farartækjum.
Rafhjól og hlaupahjól skulu geymd úti.
Snjókast er ekki leyfilegt.
Verum á skólasvæði á skólatíma.
Nemendur 5 ára til 7. bekkjar fara ekki út af leiksvæðum skólans í frímínútum.
Stöndum vörð um eigur skólans og allra sem þar starfa.
Nemendur eiga ekki að hafa peninga eða önnur verðmæti með sér í skólann að nauðsynjalausu.
Ofbeldi er ekki liðið í Landakotsskóla.