Landakotsskóli

Landakotsskóli ses er skapandi og framsækinn skóli, stofnaður 2005, með áherslu á listir og fjölbreytt nám. Skólinn byggir á gömlum grunni Landakotsskóla sem var stofnaður 1996 en horfir til framtíðar. Skólinn rekur íslenska deild sem fylgir íslenskri aðalnámskrá og alþjóðadeild þar sem kennt er á ensku og fylgir Cambridge námskrá. Lögð er rækt við læsi, félagsfærni og persónulegan þroska. Samvinna og sköpun eru rauður þráður í öllu skólastarfinu. Fjölhæfir kennarar vinna saman í teymum þvert á greinar og leiðbeina nemendum í fjölbreyttri verkefnavinnu þar sem sköpun og virk þátttaka eru í forgrunni.

Landakotsskóli - Íslenska deildin

Aðalnámskrá - kennt á Íslensku
5 ára bekkur
1. til 10. bekkur

Landakotsskóli - Alþjóðadeildin

Camebridge námskrá - kennt á ensku
Kindergarten
1st to 10th grade
Klúbbar, VAL áfangar, nemendaráð, félagslíf, franska, myndlist, STEAM, smíði, textíll, leiklist, tónlist, hljóðfærakennsla, sviðslistir, dans, scriptorium, bílskúrsband, útivera, íþróttir, árbók, skrekkur, LEGO first league, stærðfræði-VAL, myndasögugerð, spænska, Parísarval.

Gildi og einkunnarorð Landakotsskóla:

Sköpun, samvinna og samskipti í jákvæðu umhverfi sem styrkir líðan og undirbýr nemendur fyrir framtíðina.

  • Sköpun: Við hvetjum nemendur til að nýta styrkleika sína, vera skapandi og lausnamiðaðir.
  • Samvinna: Við vinnum saman, lærum hvert af öðru og eflum liðsheild.
  • Samskipti: Við leggjum áherslu á skýr og uppbyggileg samskipti og að nemendur upplifi sig sem virka þátttakendur í jákvæðu og styðjandi samfélagi.
  • Líðan: Við leggjum áherslu á jákvæða námsmenningu, sjálfsumhyggju, samkennd og seiglu.
  • Framtíðarhugsun: Við eflum nemendur til að takast á við lífið og móta eigin framtíð, styrkjum sjálfstæði, sjálfstraust og vilja til að takast á við nýjar áskoranir.

Leit