Fréttabréf frá skólastjóra
Janúar 2026
LÆSI, LESTUR OG LÍFLEGT SKÓLASTARF Í LANDAKOTSSKÓLA
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Í Landakotsskóla er ávallt mikið um að vera, dagarnir eru fullir af skemmtilegum verkefnum og töfrum í skólastofunum.
Í kjölfar ummæla menntamálaráðherra í janúar hefur verið mikil umræða í samfélaginu um lestrarkennslu. Af þessu tilefni viljum við segja ykkur frá því hvernig við vinnum með lestur og læsi í Landakotsskóla.
LESTUR Í LANDAKOTSSKÓLA
Við leggjum áherslu á fagleg og fjölbreytt vinnubrögð í lestrarkennslu. Við notum blandaðar aðferðir þar sem hljóðaaðferðin er grunnurinn. Lestur, lesskilningur og ritfærni eru þjálfuð markvisst frá fyrsta degi.
- Heimalestur er afar mikilvægur og þar eruð ÞIÐ FORELDRAR Í LYKILHLUTVERKI.
- Greining og skimun hefst STRAX í 1. bekk.
- Við GRÍPUM SNEMMA INN Í ef þörf er á og sýnum nemendum einstaklingsbundna umhyggju og stuðning í gegnum sérkennslu.
- Við tökum reglulega þátt í ÁTAKSverkefnum eins og Svakalegu lestrarkeppninni í haust fyrir 1. - 7. bekk.
Börnin þurfa líka að þroska með sér skilning sinn á læsi í víðu samhengi, skilja menningu, listir, umhverfi og samfélag. Nemendur okkar fá fjölda tækifæra til að læra í og af nærumhverfi sínu, enda þekkja okkar nemendur vel allar þær menningarstofnanir sem eru í nærumhverfi okkar, borgarumhverfi og útivistarsvæði.
GÓÐUR ÁRANGUR - ALLAR DYR STANDA OPNAR
Árangur nemenda okkar endurspeglar áherslur í kennslu og námi í Landakotsskóla:
- Undanfarin ár hafa nær 100% nemenda í 2. bekk NÁÐ LÁGMARKSHÆFNI í lesmáli.
- Landakotsskóli hefur verið EINI SKÓLINN Í REYKJAVÍK sem nær slíkum toppárangri, en Lesmál metur lestur, lesskilning og réttritun hjá nemendum í 2. bekk íslenskra grunnskóla.
- Í 10. bekk fá yfir 90% nemenda okkar sitt FYRSTA VAL í framhaldsskóla.
- Góður grunnur í lestri og læsi OPNI DYR.
Við höfum fengið mikla athygli fyrir árangurinn. Sérfræðingar frá Miðju máls og læsis hafa komið í heimsókn til að kynna sér vinnubrögð við skólann og erlendir fjölmiðlar hafa kynnt sér starfið hjá okkur. Í janúar kom BBC Scotland í heimsókn. Verið var að vinna þátt um stöðu íslenskunnar og rætt var við nemendur og kennara í 4. og 8. bekk sem stóðu sig afburðavel og komu vel fyrir í upptökunum, þátturinn verður birtur í febrúar á BBC.
FRAMTÍÐARHÆFNI OG TÆKNILÆSI
Við tökum framtíðarhæfni alvarlega og höfum verið frumkvöðlar í STEAM-kennslu. STEAM er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir fræðigreinar á sviði verkfræði, stærðfræði, raunvísinda og náttúruvísinda auk lista og skapandi greina. STEAM byggir á færniþjálfun þar sem nemendur læra að rannsaka og leysa verkefni með fjölbreytilegum aðferðum lista og vísinda.
Í janúar héldu nemendur úr 9. bekk til Finnlands í vinnusmiðju með nemendum frá Finnlandi og Danmörku, sem hluti af Nordplus-þróunarverkefninu SHARED FUTURE: NORDIC TECH PEDAGOGY. Okkur var boðiN þátttaka í þessu verkefni að vinna með leiðandi skólum í forritun og tækni á Norðurlöndunum vegna reynslu okkar af STEAM kennslu til fjölda ára. Átta nemendur í 9. bekk íslensku deildar og alþjóðadeildar tóku þátt. Nemendur unnu saman að nýsköpun og samfélagsverkefnum með áherslu á forritun, tæknilega færni og félagslega sjálfbærni með nemendum frá hinum skólunum. Sú ferð gekk frábærlega vel og skilaði ánægðum nemendum og kennurum í lok ferðar. Nordplus- verkefnið er til tveggja ára og fáum við nemenda heimsóknir til okkar á næstu misserum.
Í takt við áherslur STEAM-kennslu og Nordplus-verkefnisins ætlum við að þróa vísinda- og skapandi smiðjur við skólann til að efla tæknimenntun og læsi, til að styðja við framtíðarfærni nemenda.
LÆSI ER GRUNNUR ALLS - NÚ OG TIL FRAMTÍÐAR
Við í Landakotsskóla munum áfram byggja upp sterkan grunn í læsi, þekkingu, sköpun og framtíðarfærni - allt sem hjálpar börnunum okkar að vaxa, dafna og EIGA FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR.
Markmið er að ALLAR DYR STANDA OPNAR okkar frábæru nemendum að loknu námi í Landakotsskóla.
KVEÐJA OG FRÉTTIR FRÁ STJÓRN LANDAKOTSSKÓLA:
. Stjórnin fundaði í vikunni með skólastjóra og var farið yfir ýmis spennandi málefni
. Jenny McKeown, aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri alþjóðadeildar, kom í heimsókn og ræddi um alþjóðadeildina.
. Ljóst er að margir spennandi möguleikar eru á frekara samstarfi á milli íslenskudeildarinnar og alþjóðadeildarinnar í náinni framtíð
. Jenny fór yfir fyrirhugaða heimsókn frá NEASC (vottunaraðili alþjóðadeildarinnar) í næstu viku og þær áherslur um nám og kennslu sem metnar verða að þessu sinni. Vottunarferlið felur í sér að fara yfir gæðamál skólans á mörgum sviðum er varðar stjórnun, nám, kennslu og öryggismál og nýtur allur skólinn góðs af þessari vinnu.
. Stjórnin mun hitta fulltrúa NEASC og eiga í samtali um framvindu og árangur.
Rekstrarerfiðleikar síðustu misseri, m.a. vegna fjölgunar nemenda og húsnæðismála, eru loks að baki með tilkomu nýrra samninga við Reykjavíkurborg. Þeir, ásamt öðrum þáttum, stuðluðu að um 170 m.kr. viðsnúningi á milli áranna 2024 og 2025.
Við munum eflaust mæta nýjum áskorunum á næstu misserum eins og aðrar menntastofnanir í landinu en í upphafi ársins 2026 erum við betur í stakk búin til að mæta framtíðar verkefnum.
Góð kveðja til ykkar kæru foreldrar,
Sigrún