Fréttasafn

Á fimmtudaginn 26. mars 2026 - appelsínugul viðvörun vegna veðurs // On Thursday 26th March 2026 - Orange Weather Warning
Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 26. mars, hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá klukkan 7-13. Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins og skóla- og frístundasvið hafa tekið ákvörðun um að skóla- og frístundastarf verði fellt niður á morgun fimmtudag.
FÓLK ER HVATT TIL AÐ HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU.
Skólastarf fellur niður. Í landakotsskóla verður aðeins lágmarksopnun með fáu starfsfólki (a.m.k. 2 starfsmenn) á meðan viðvörun er í gildi. Skólinn verður opinn fyrir börn forsjáraðila sem sinna samfélagslega mikilvægri þjónustu/neyðarþjónustu. Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börn sín í grunnskóla og leikskóla eru beðin um að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti. Vinsamlegast sendið póst á sigrun@landakotsskoli.is
FRÍSTUND FELLUR EINNIG NIÐUR.
Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fjölmiðlum og óskum þess að allir fari varlega. Við væntum þess að skólastarf verði með venjulegu sniði á föstudag.
Til foreldra í 7. – 10. Bekk! Við gerum ráð fyrir að nemendaráð GETI haldið „hver gerði það?“ leynileikakvöldið á fimmtudagskvöld í matsal skólans, þar sem búist er við að veðrið verði gengið yfir þá. Við sendum tölvupóst um hádegisbil til að staðfesta þetta.
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
Storm warning tomorrow - schools only open for emergencies.
Please note that an Orange Weather Warning has been issued for the Greater Reykjavik Area, effective from 07:00 until 13:00 on Thursday, 26 March.
PEOPLE ARE URGED TO STAY AT HOME UNTIL THE STORM PASSES OVER TOMORROW AND NOT TO BE OUTSIDE UNLESS ABSOLUTELY NECESSARY.
There is NO FORMAL SCHOOL TOMORROW. Landakotsskóli will remain open but with minimal staffing. The school will be open for children of guardians who provide socially important services/emergency services and for children of guardians who are not covered by the announcements. If parents need to bring their children to school, we request that they notify school administrators via email. Please send an email to sigrun@landakotsskoli.is or jenny@landakotsskoli.is for IDL.
FRÍSTUND or after‑school program are also CANCELLED TOMORROW.
We kindly ask you to follow the news closely and wish everyone to stay safe. We expect school activities to return to normal on Friday.
To parents in 7th – 10th grade. We expect the student council WILL BE ABLE to host the entertaining "whodunit" mystery as planned on Thursday evening in school as the weather is expected to have passed by then. We will send an email around noon to confirm this.