Fréttasafn
Hvað er að vera ég?
Þrír nemendur Landakotsskóla, Baldvin Snær Völundarson í 10. bekk og Deanne Rylan Maamo Tolato og Ólöf Stefanía Hallbjörnsdóttir, bæði í 9. bekk, eru meðal 48 textasmiða sem nú eiga texta á mjólkurfernum Mjólkursamsölunnar.
MS, Mjólkursamsalan, hefur frá því 1994 lagt áherslu á að efla móðurmálið á ýmsan hátt og flest þekkjum verkefni tengd málrækt og sköpun á mjólkurfernum. Að þessu sinni var það keppni í skapandi skrifum meðal unglinga undir nafninu Fernuflug.
Fjöldi grunnskólanema tók þátt en vegleg verðlaun voru fyrir 1.-3. sæti. Markmið verkefnisins er að auka sköpunargleði nemenda og skapa lifandi umræður um íslenska tungu.
Alls bárust 1.200 textar í keppnina frá nemendum í 8.-10. bekk um land allt og af þeim voru 48 textar valdir til birtingar á mjólkurfernum.
Það er því ekki lítið að Landakotsskóli á þrjá textasmiði meðal þeirra 48 sem fyrir valinu urðu um flug á fernu. Það var Sigríður Alma íslenskukennari sem vann verkefnið með nemendum í unglingadeild skólans en nemendur spurðu sig að því hvað er að vera ég?
Við hvetjum alla til að skima eftir okkar nemendum á Fernuflugi við kaup á fernum.
Texti Baldvins;

Texti Ólafar;
Hvað er að vera ég?

Texti Deanne;


