Fréttasafn

Þemadagar - Theme Days: Pourquoi Pas?

Þemadagar - Theme Days: Pourquoi Pas?

19.09.2026

Kæru foreldrar og forráðamenn,

(English Below)

Í þessari viku voru þemadagar á dagskrá í öllum skólanum. Við höldum slíka uppbrotsdaga nokkrum sinnum á ári til að gefa nemendum tækifæri til að vinna saman að sameiginlegum verkefnum, kynnast betur og mynda tengsl og vináttu þvert á aldurshópa og deildir skólans.

Að þessu sinni fengum við innblástur frá Renaud Durville, menningarfulltrúa franska sendiráðsins og foreldri við Landakotsskóla. Á þessu ári eru liðin 90 ár frá því að franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við mynni Borgarfjarðar.

Lífshlaup leiðangursstjórans, Jean-Baptiste Charcot, er afar merkilegt. Hann var læknir að mennt en einnig skipstjóri, landkönnuður, vísindamaður, leiðangursstjóri og heimskautafari. Rannsóknir hans lögðu mikilvægan grunn að þeirri þekkingu sem við búum yfir í dag um norðurslóðir og Suðurskautið og enn í dag er vísað til þeirra þegar fjallað er um veðurfar og loftslagsbreytingar. Saga Charcots og rannsóknarskipsins Pourquoi Pas? varð uppspretta fjölbreyttra verkefna sem nemendur unnu að á þemadögunum.

Við sóttum innblástur í lífsferil Charcots, áhuga hans á náttúru, umhverfi, menningu og samskiptum við fólk alls staðar að úr heiminum. Tengingar Landakotsskóla við Charcot eru einnig sérstakar, en minningarathöfn sem haldin var eftir skipbrotið fór fram í Kristskirkju í Landakoti að viðstöddum fulltrúum frá Íslandi og Frakklandi. Meðal nemenda sem urðu vitni að athöfninni var Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Verkefnin voru unnin með hliðsjón af áherslum Landakotsskóla:

  • Læsi – 5 ára bekkur til 4. bekkjar
  • Félagsfærni – 5. til 7. bekkur
  • Persónulegur þroski – 8. til 10. bekkur

NÁTTÚRULÆSI – 5 ára bekkur til 4. bekkjar

Yngstu nemendurnir beindu sjónum að náttúru og umhverfi sínu í tengslum við Dag íslenskrar náttúru. Þau rannsökuðu veðrið, ortu ljóð, sköpuðu listaverk og sungu á íslensku, ensku og frönsku. Með fjölbreyttum verkefnum þjálfuðust þau í að skynja, túlka og miðla upplifun sinni af náttúrunni.

 

LEIKJASKRÁ – 5. til 7. bekkur

Í anda Charcots, sem átti auðvelt með að mynda tengsl og leiða fólk saman, rannsökuðu nemendur hvernig leikir geta styrkt samskipti og samvinnu. Þau kynntust fjölbreyttum leikjum, hönnuðu eigin leiki og deildu hugmyndum sínum með öðrum. Um leið þjálfuðust þau í félagsfærni, skapandi hugsun, lausnaleit og miðlun, og gáfu út leiki sem munu nýtast vel í leik og starfi skólans.

 

MÖGULEG FRAMTÍР– 8. til 10. bekkur

Æviferill Charcots varð innblástur fyrir verkefni unglinganna. Frá barnæsku dreymdi hann um að sigla um heiminn og nefndi fyrsta leikfangabát sinn Pourquoi Pas? eða „Af hverju ekki?“. Þótt hann menntaði sig sem læknir fylgdi hann síðar ástríðu sinni fyrir vísindum, rannsóknum og leiðöngrum. Nemendur nýttu sögu hans sem kveikju að því að velta fyrir sér eigin framtíð. Þau kortlögðu styrkleika sína, áhugasvið, markmið og mögulegar framtíðarleiðir.

GESTIR

Hluti af verkefninu var að fá gesti og góða vini Landakotsskóla til að ræða við nemendur um eigið lífshlaup og starfsferil. Nemendur í 8. bekk fengu heimsókn frá Skúla Mogensen, frumkvöðli og stofnanda WOW air. Nemendur í 9. bekk hittu Sigríði Björk Guðjónsdóttur, fyrrverandi ríkislögreglustjóra, og nemendur í 10. bekk ræddu við Patrick Sulem, Head of Scientific Strategy hjá Amgen deCODE genetics.

Gestirnir veittu nemendum innblástur, deildu reynslu sinni og svöruðu fjölmörgum áhugaverðum spurningum. Þetta voru dýrmætar stundir sem vonandi munu nýtast nemendum vel á þeirra eigin vegferð.

Á fimmtudag fengum við einnig sérstaka heimsókn frá Önnu Manipour Charcot, afkomanda Jean-Baptiste Charcots. Hún sagði nemendum frá langafa sínum og arfleifð hans og söng með nemendum. Anna hefur um árabil unnið að varðveislu sögu Charcots í París og býr í húsi sem tengist sögu fjölskyldunnar. Þegar hún frétti að um tuttugu nemendur hefðu skráð sig í valferð til Parísar í vor bauð hún þeim öllum í heimsókn!

 

Við erum afar stolt af nemendum okkar og því sem þau afrekuðu á þessum þemadögum. Ný tengsl og vinátta mynduðust, nemendur njóta nú leikjanna sem þau hönnuðu sjálf og unglingarnir hafa fengið tækifæri til að horfa til framtíðar með nýjum augum.

Sjá viðhengi um markmið þemadaga, einnig sjá hlekk á facebook um Landakotsskóla og verkefni nemenda.

Næstu þemadagar verða í nóvember og munu snúast um mannréttindi barna - og ábyrgð.

Góða helgi kæru foreldrar og forráðamenn.

Bestu kveðjur,Sigrún

Dear Parents and Guardians,

This week, Theme Days took place across the entire school. We organize these special project days several times each year to give students opportunities to work together on shared projects, get to know one another better, and build friendships across age groups and school divisions.

This year, we drew inspiration from Renaud Durville, Cultural Attaché at the French Embassy and a parent at Landakotsskóli. This year marks the 90th anniversary of the loss of the French research vessel Pourquoi Pas? off the coast of Borgarfjörður, Iceland.

The life of the expedition leader Jean-Baptiste Charcot is truly remarkable. Trained as a physician, he was also a captain, explorer, scientist, expedition leader, and polar researcher. His work laid important foundations for our understanding of the Arctic and Antarctica, and his findings are still referenced today in discussions about weather, climate, and environmental change. The story of Charcot and the Pourquoi Pas? inspired a wide range of projects during our Theme Days.

We explored Charcot’s life and legacy, his passion for nature, the environment, culture, and his connections with people from around the world. Landakotsskóli also has a special connection to Charcot. Following the shipwreck, a memorial service was held at Christchurch Cathedral (Kristskirkja) in Landakot, attended by representatives from Iceland and France. Among the students who witnessed the ceremony was Vigdís Finnbogadóttir, former President of Iceland.

The projects reflected the key focus areas of Landakotsskóli:

  • Literacy – Preschool to Grade 4
  • Social Skills – Grades 5–7
  • Personal Development – Grades 8–10

 

ENVIRONMENTAL LITERACY – Preschool to Grade 4

Our youngest students explored nature and their local environment in connection with Icelandic Nature Day. They investigated the weather, wrote poetry, created artwork, and sang in Icelandic, English, and French. Through a variety of activities, they developed their ability to observe, interpret, and communicate their experiences of the natural world.

 

GAMES AND COLLABORATION – Grades 5–7

Inspired by Charcot’s ability to bring people together and build strong relationships, students explored how games can strengthen communication and teamwork. They learned about different types of games, designed games of their own, and shared their ideas with others. Along the way, they developed social skills, creative thinking, problem-solving abilities, and presentation skills. The games they created have now been added to the school’s collection and will be used by students in the future.

POSSIBLE FUTURES – Grades 8–10

Charcot’s life story inspired the projects of our oldest students. As a child, he dreamed of sailing around the world and named his first toy boat Pourquoi Pas? (“Why Not?”). Although he trained as a physician, he later chose to follow his passion for science, exploration, and discovery.

Using Charcot’s story as a starting point, students reflected on their own futures. They explored their strengths, interests, goals, and possible pathways for education and careers.

 

GUEST SPEAKERS

A special part of the project was the opportunity for students to meet friends and supporters of Landakotsskóli who shared insights about their lives and careers.

Grade 8 students met Skúli Mogensen, entrepreneur and founder of WOW air. Grade 9 students met Sigríður Björk Guðjónsdóttir, former National Commissioner of the Icelandic Police. Grade 10 students spoke with Patrick Sulem, Head of Scientific Strategy at Amgen deCODE genetics.

The guests inspired students with their experiences, answered many thoughtful questions, and shared valuable advice. These were meaningful conversations that we hope will encourage students as they continue their own journeys.

 

On Thursday, we were also delighted to welcome Anna Manipour Charcot, a descendant of Jean-Baptiste Charcot. She spoke to the students about her great-grandfather’s life and legacy and joined them in song. Anna has spent many years helping preserve Charcot’s history in Paris and lives in a house connected to the family’s story. When she learned that around twenty students had signed up for the school’s educational trip to Paris this spring, she kindly invited them all to visit her there.

 

We are incredibly proud of our students and all they accomplished during these Theme Days. New friendships were formed, students are already enjoying the games they designed themselves, and our older students have had the opportunity to look at their futures with fresh eyes and renewed confidence.

 

Please see the attached documents for more information about the aims and goals of the Theme Days. You can also follow the link to our Facebook page to learn more about the students’ projects and experiences.

 

Our next Theme Days will take place in November and will focus on Children’s Rights - and Responsibilities.

 

We wish all parents and guardians a wonderful weekend.

Warm regards,

Sigrún

Engin ummæli enn
Leit