Fréttasafn
Menning, samskipti og miðlun
Nú eru þemadagar en þeir eru að þessu sinni með nokkuð öðru sniði en áður. Þeir vara lengur og eru brotnir upp með haustfríi frá föstudeginum 27. október til þriðjudagsins 31. október.
Menning, samskipti og miðlun er yfirheiti þemadaganna, samskipti og menningarleg fjölbreytni er nú sett á oddinn. Áhersla er á að kanna og læra um samskipti og tengsl í samfélaginu nær og fjær, í staðbundnu og hnattrænu samhengi.
Í yfirlýsingu UNESCO um menningarlega fjölbreytni (UNESCO Universal Declaration on Cultural Diversity) er bent á að það sé mikilvægara en nokkru sinni fyrr að miðla gildum og viðhorfum sem geta haft áhrif til góðs á samskipti þvert á menningarheima. Samkvæmt UNESCO hefur þvermenningarleg samræða áhrif á félagslega samheldni sem hjálpar til við að skapa umhverfi sem stuðlar að öryggi, velferð og sjálfbærri þróun. Því er mikil og markviss vinna framundan.
Landakotsskóli hefur þá sérstöðu að reka alþjóðlega deild samhliða íslenskri deild. Skólasamfélagið er fjölþjóðlegt og því gefst tækifæri til að dýpka skilning á fjölbreytileika. Við viljum efla skilning nemenda á margbreytileika og vinnum að því að styrkja nemendur í að þeir verði næmari fyrir menningarlegri fjölbreytni og þvermenningarlegum samskiptum.
Þemadagar eru mikilvægir í skólastarfi en þá er hægt að glíma við viðfangsefni á óhefðbundnari hátt, með samþættingu námsgreina í gegnum beina reynslu nemenda og samstarf þvert á bekkjarheildir. Allir árgangar taka þátt og vinna að vel skilgreindum þemum sem kennarar íslensku og alþjóðadeildar hafa unnið að í sameiningu.
Nemendur munu finna fjölbreyttar leiðir til að afla upplýsinga og reynslu, vinna úr þeim á skapandi hátt og skapa ný tengsl. Auk þess að kanna tengsl þvert á menningarheima kanna nemendur leiðir til að miðla upplifun sinni á þemadögunum.
Á næstu tveimur vikum munu kennarar miðla til ykkar framvindu þemadaganna og eftir að þeim lýkur koma nemendur heim með sínar ferilmöppur og deila upplifun sinni af þessu ferðalagi með ykkur. Þemavikurnar gefa nemendum okkar tækifæri til að kynnast og vinna með jafnöldrum og nemendum þvert á deildir skólans.
Verkfallsdagur 24. október
Skóli fellur niður 24. október. Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls. Skólastarf og Frístund falla niður þann dag.
Haustfrí
Föstudeginum 27. október og mánudeginum 30. október er haustfrí og enginn skóli. Nemendur mæta aftur í skólann að morgni 31. október.
