Fréttasafn

Stærðfræðikeppni Pangea 2025

Stærðfræðikeppni Pangea 2025

23.04.2025

Til hamingju! Næstum við 5000 8. og 9. bekk nemendur tóku þátt í stærðfræðikeppni Pangea 2025.

Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.

Nú liggja fyrir niðurstöður 2. umferðar Pangeu 2025. Í 8.bekk þurfti að minnsta kosti 21 stig í 2. umferð til þess að komast í úrslitin og í 9.bekk þurfti að minnsta kosti 23 stig. 98 nemendum er boðin þátttaka í úrslitakeppnina í ár, 50 úr 8. bekk og 48 úr 9.bekk, en upprunalega voru 4.689 nemendur skráðir úr 62 skólum, 2.289 úr 8. bekk og 2.400 úr 9.bekk!

Af þeim voru 6 nemendur frá Landakotsskóla.Til hamingju Kristian (8th Grade), Malo (8th Grade), Kári (8.b), Cate (9th Grade), Rok (9th Grade) og Ingvar (9.b)!

Úrslit Pangeu mun fara fram à laugardaginn 17. maí í Menntaskólanum við Hamrahlíð (MH) klukkan 11:30 - 15:30.  

Engin ummæli enn
Leit