Fréttasafn
Skólastarf hefst fimmtudaginn 20. ágúst og verið öll velkomin á skólasetningu.
Við biðjum foreldra að mæta með börnum sínum ef mögulegt er, skólasetning og kynning í heimastofu tekur um klukkutíma.
Skólasetning fyrir 5 ára- 8. bekk hefst í matsal skólans, að setningu lokinni fara foreldrar og börn í heimastofu þar sem umsjónarkennarinn kynnir skólastarfið og svarar spurningum.
Skólsetning fyrir 9.- 10. bekk hefst í Stýró, Öldugötu 23 (fyrir neðan Landakotsspítala)
Mæting er eftirfarandi eftir aldurshópum hjá nemendum í íslenskudeildinni;
Kl. 9:00 - 5 ára, 1. bekkur og 2. bekkur, hittumst í matsalnum í 15 mín. og förum svo í heimastofur.
Kl. 9:30 - 9. bekkur og 10. bekkur í Stýró, hittumst í 9. bekkjarstofu á jarðhæð og förum svo í heimastofur.
Kl. 10:00 - 3. bekkur, 4. bekkur og 5. bekkur, hittumst í matsalnum í 15 mín. og förum svo í heimastofur.
Kl. 11:00 - 6. bekkur, 7. bekkur, 8. bekkur, hittumst í matsalnum í 15 mín. og förum svo í heimastofur.
Kennt verður samkvæmt stundaskrá frá föstudegi 21. ágúst.
Frístund fyrir 1. bekk - 4. bekk hefst þennan sama dag föstudaginn 21. ágúst
