Fréttasafn
LANDAKOTSSKÓLI 2026–2027
20. ágúst, Landakotsskóli.
Kæru nemendur, foreldrar, starfsfólk og aðrir gestir.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Það er yndislegt að standa hér á fyrsta skóladegi og sjá ykkur öll. Loksins eruð þið komin aftur, kæru nemendur! Við höfum saknað ykkar og hlökkum til að vinna með ykkur í vetur.
Nú er sumarið að baki og ég vona að þið hafið haft það gott. Fram undan er vetur fullur af tækifærum. Við kennarar hlökkum til að vinna með ykkur og viljum að skólinn sé staður þar sem þið eruð glöð, ykkur líður vel og þið fáið notið ykkar í námi og leik.
Við hlökkum ekki síður til samstarfs við ykkur foreldra. Við vitum að gott samstarf heimilis og skóla er ein af mikilvægustu undirstöðum farsællar skólagöngu. Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með skólastarfinu, styðja við börnin ykkar og taka virkan þátt í skólasamfélaginu. Umsjónarkennarar munu á næstu dögum kalla eftir bekkjarfulltrúum sem gegna mikilvægu hlutverki við að efla tengsl foreldra, foreldrafélags og skóla.
Í vetur höldum við áfram innleiðingu nýrra kerfa. Þar á meðal er Námfús samskiptavefur skóla og foreldra sem kemur í stað Mentors. Nýjar leiðir kalla á lærdóm og aðlögun fyrir okkur öll og því biðjum við um þolinmæði og skilning á meðan við festum ný kerfi í sessi
Sérstaða Landakotsskóla er mikil. Við búum vel í þessu fallega og sögulega skólahúsnæði sem á rætur að rekja til skólastarfs sem hófst árið 1896. Jafnframt horfum við til framtíðar.
Þegar við horfum á nemendur okkar í dag getum við hugsað okkur þau sem fullorðið fólk eftir einn áratug, tvo eða þrjá. En hvernig verður heimurinn þá? Hvað verður efst á baugi árin 2040, 2050 eða 2060?
Við vitum það ekki. Þess vegna leggjum við svo mikla áherslu á metnaðarfullt nám sem byggir á traustum grunni þekkingar sem nýtist við allar aðstæður, og ekki síður á sköpun, samskipti, samvinnu, gagnrýna hugsun, hugrekki og gleðina við að læra. Við viljum búa börnin undir framtíð sem mun krefjast sveigjanleika, frumkvæðis og sköpunarkrafts.
Nemendur fá tækifæri til að vinna á fjölbreyttan og skapandi hátt, læra tungumál, stunda list- og verkgreinar og taka þátt í verkefnum sem byggja á bæði þekkingarleit og sköpun.
Landakotsskóli býr einnig yfir einstökum menningarauði. Hér starfar eina alþjóðadeild grunnskóla í Reykjavík og saman mynda íslenska deildin og alþjóðadeildin fjölbreytt og auðugt skólasamfélag þar sem ólík tungumál, menningarheimar og reynsla mætast á hverjum degi.
Kennarar með fjölbreyttan bakgrunn vinna saman að því að skapa metnaðarfullt námsumhverfi og markmið okkar er að byggja á þessum styrkleika, efla víðsýni nemenda og skapa tækifæri til náms fyrir fjölbreyttan hóp nemenda.
Og hvað bíður ykkar í vetur, kæru nemendur?
Á yngsta stigi verður áfram lögð rík áhersla á læsi í víðum skilningi. Nemendur læra í gegnum lestur, listir, tónlist, útikennslu og fjölbreytt verkefni innan og utan skólans. Eftir skóla geta nemendur einnig tekið þátt í frístundastarfi og nemendur í 3. og 4. bekk fá auk þess kost á hljóðfæranámi á skólatíma.
Nemendur á miðstigi, í 5., 6. og 7. bekk: þið takið þátt í að byggja upp eigið nemendafélag sem stendur fyrir skemmtunum og viðburðum fyrir ykkur. Þið kynnist nýjum námskeiðum og verkefnum, meðal annars í vídeólist þar sem þið getið lært að gera hreyfimyndir. Þið farið í nýsköpunaráfanga þar sem þið kynnist hönnunarferlinu og lærið hvernig hugmyndir geta orðið að verkefnum, samtökum eða jafnvel fyrirtækjum. Í sviðslistum æfið þið spuna, hópefli og að taka þátt í að setja upp leikverk.
Einnig verða fjölbreyttir klúbbar í boði: leiklist, textíl, franska, útiveru og fleira. Ég hef meira að segja heyrt að einhverjir nemendur hafi hug á að gefa út eigið vikublað fyrir skólann!
Í janúar fara svo nemendur í 7. bekk í hina árlegu ferð að Reykjum, sem er alltaf einn af hápunktum skólaársins.
Nemendur í 8. bekk fá að velja úr fjölbreyttu úrvali valgreina. Nemendur í 8.–10. bekk, bæði í íslensku deildinni og alþjóðadeildinni, velja sér tvær valgreinar á hverju tíu vikna tímabili og fá þannig tækifæri til að sækja allt að 18 námskeið á skólaárinu, byggð á eigin áhuga og styrkleikum.
Meðal nýrra valgreina í vetur er útiveran hjá 8. bekk, þar sem nemendur læra að skipuleggja og undirbúa útivistarferð. Meira um það síðar!
Þið, nemendur í 9. og 10. bekk, eigið eftir að setja sterkan svip á skólaárið. Þið eruð fyrirmyndir yngri nemenda og gegnið mikilvægu hlutverki í nemendafélagi skólans, viðburðum, árshátíð og öllu því sem gerir skólasamfélagið okkar lifandi og skemmtilegt.
Ég vona að þið takið þeim tækifærum sem fram undan eru með forvitni, hugrekki og jákvæðu hugarfari. Við erum hér til að styðja ykkur, hlusta á ykkur og hjálpa ykkur að ná árangri.
Munið líka að skólinn snýst ekki aðeins um einkunnir og verkefni. Hann snýst líka um að vaxa sem manneskjur, finna styrkleika sína, prófa nýja hluti og hafa trú á sjálfum sér. Mistök eru eðlilegur hluti af náminu og oft lærum við einmitt mest þegar ekki allt gengur samkvæmt áætlun. Þá er bara að taka stefnuna á ný og halda áfram.
Nú vil ég nýta tækifærið til að kynna fyrir ykkur okkar frábæru kennara og annað starfsfólk.
Það er von mín að skólaárið sem nú hefst verði ár náms, gleði, vináttu og framfara. Að hér ríki góður andi, metnaður og samstaða og að við vinnum saman af virðingu, umhyggju og ábyrgð.
Að lokum óska ég ykkur öllum farsældar og ánægjulegrar skólagöngu á nýju skólaári.
Að svo mæltu lýsi ég Landakotsskóla settan skólaárið 2026–2027.
