Fréttasafn
Fréttabréf frá skólastjóra
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Miklar umræður hafa verið um niðurstöður nýjustu Pisa könnunarinnar sem fjölmiðlar sögðu frá í gær og eðlilega vekur staða íslenskra grunnskólanemenda áhyggjur þegar horft er til þeirra grunngreina sem könnunin nær til. Það er öllum ljóst að íslensk stjórnvöld og skólakerfið þurfa að bregðast við þessum niðurstöðum og reyna að skilja hvernig hægt er að bæta árangurinn.
Þó að þetta eigi við um skólakerfið í heild sinni er þó mikilvægt að við áttum okkur líka á því að staða Landakotsskóla er í heild mjög sterk. Þótt menntamálayfirvöld gefi ekki kost á því að bera saman árangur skóla í Pisa könnuninni hefur Landakotsskóli um langa hríð komið mjög vel út úr öllum samanburði við aðra skóla og við vitum að árangur okkar nemenda er langt yfir meðaltali í grunngreinum. Jafnframt leggjum við mikið á okkur til að tryggja vellíðan barna í skólanum og vonum sannarlega að árangur okkar á því sviði sé ekki lakari.
En hvernig metur maður gæði skólastarfs?
Einn besti mælikvarðinn á það er árangur nemenda eftir að þeir ljúka námi og yfirgefa skólann. Allt bendir til að staða fyrrverandi nemenda skólans sé í heild mjög góð þegar kemur að námi og starfi.
Það hefur verið mjög gaman að hitta fyrrverandi nemendur okkar sem útskrifuðust í vor og heyra hvernig þeim gengur í framhaldsskóla. Nemendur Landakotsskóla stunda nú nám við fjölbreytta framhaldsskóla, þar á meðal Menntaskólann í Reykjavík, Kvennaskólann, Verslunarskóla Íslands, Tækniskólann og Menntaskólann í Kópavogi.
Við heyrum sömu skilaboðin aftur og aftur:
„Það gengur rosalega vel.“ „Stærðfræðin er ekkert mál.“ „Ég fékk áfanga metna í frönsku, - núna tek ég spænsku sem fjórða tungumál.“ „Mér líður frábærlega og er orðin nemendafulltrúi.“
Framhaldsskólarnir staðfesta jafnframt að nemendur okkar séu vel undirbúnir, sjálfstæðir og ábyrgir. Þetta er einmitt markmið okkar: að bjóða upp á umhverfi þar sem nemendur njóta sín í námi, veitir þeim menntun sem undirbýr þá vel fyrir næsta skólastig og tryggir að allar dyr standi þeim opnar.
Þess vegna kemur það okkur ekki á óvart þegar foreldrar hafa samband við skólann eftir að eldri börn þeirra hafa kynnst afburðanemendum í framhaldsskólunum sem útskrifuðust úr Landakotsskóla, og óska eftir flutningi yngri barna þeirra í skólann okkar.
Góður árangur á öllum sviðum.
Á öllum mælingum kemur Landakotsskóli vel út og er einn af þeim efstu.
Árangur nemenda okkar er eftirtektarverður. Nýjustu niðurstöður Lesmáls sýna að allir nemendur í 2. bekk Landakotsskóla náðu aldurssvarandi lestrarhæfni vorið 2026, svo dæmi sé tekið. Landakotsskóli er eini skólinn í Reykjavík sem náði þessum árangri. Mörg undanfarin ár, hefur þetta einnig átt við.
Niðurstöður Matsferils í íslensku og stærðfræði frá í mars 2026 úr 4.–9. bekk sýndu einnig að nemendur í flestum árgöngum eru langt yfir landsmeðaltali.
Námsárangur og skapandi starf.
Við munum hér eftir sem hingað til leggja áherslu á grunngreinar til að tryggja að nemendur haldi því forskoti sem við höfum séð. En þetta veltur ekki síður á því að bjóða upp á fjölbreytt skapandi skólastarf þar sem félagsfærni nemenda, skapandi hugsun og nýsköpun er líka í fyrirrúmi til að undirbúa nemendur ekki aðeins fyrir áframhaldandi nám heldur einnig fyrir virka þátttöku í síbreytilegum heimi.
Með bestu kveðju,
Sigrún Birgisdóttir Skólastjóri Landakotsskóla
