Fréttasafn
Við héldum upp á Pi-daginn með skemmtilegum stærðfræðiverkefnum alla vikuna, en að sjálfsögðu var föstudagurinn, 14. mars (3.14), aðal dagurinn!
Nemendur í 9. bekk undirbjuggu heila kennslustund fyrir 5. bekk þar sem þau lærðu fjölmargar áhugaverðar staðreyndir og brandara um töluna π. 8. bekkingar héldu einnig kynningu fyrir 4. bekk, og jafnvel yngstu nemendurnir í leikskólanum tóku þátt og skemmtu sér við að læra um mismunandi tölustafi í π.
Það var frábær vika þar sem stærðfræðin var í aðalhlutverki! 🎉🔢
Engin ummæli enn
