Fréttasafn
Nemendur í 9. og 10. bekk / 9th og 10th fóru saman í vettvangsferð í Laugardalshöll á sýninguna Mín framtíð 2025 sem haldin er dagana 13.-15.mars sl. Sýningin er haldinn annað hvert ár og var hin glæsilegasta og mikið í hana lagt. Markmið ferðarinnar var að gefa nemendum tækifæri til að kynna sér ólíkar starfsgreinar og námsframboð framhaldsskóla. Í Laugardalshöll voru 24 framhaldsskólar að kynna námsframboð sitt, bæði bóklegt og verklegt.
Náms- og starfsráðgjafar, kennarar og fulltrúar nemenda voru á staðnum og svöruðu fyrirspurnum um námið, félagslífið og inntökuskilyrði. Á sama tíma fór fram Íslandsmót iðn- og verkgreina sem að jafnaði er haldið á tveggja ára fresti.
Nemendur fóru í Laugardalshöllina í rútum í fylgd kennara, náms- og starfsráðgjafa og starfsmanna skólans.
Nemendurnir okkar nýttu tímann vel og spurðu spurninga og voru til fyrirmyndar. Þetta var frábær ferð fyrir öll.