Fréttasafn
Nemendur Landakotsskóla þreyta stærðfræðipróf í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Föngulegur hópur fimmtán nemenda úr stærðfræðivali í 9. og 10. bekk í Landakotsskóla fóru sl. mánudag í próf á framhaldsskólastigi í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Það var mikil upplifun fyrir nemendurna að fá innsýn inn í það hvernig er að taka próf á menntaskólastigi. Það er ástæða til að óska þeim til hamingju með árangurinn, kjarkinn og dugnaðinn sem að baki þessum árangri stendur að takast á við við þessa stóru áskorun, sem menntaskólastærðfræði er.
Um var að ræða próf í fyrstu tveimur stærðfræðiáföngunum á náttúrfræðibraut MH, sem nemendurnir hafa verið duglegir að undirbúa sig fyrir í allan vetur, samhliða grunnskólastærðfræði síns bekkjar. Sumir nemendanna hafa tekið aukastærðfræði öll árin í unglingadeild. Áfanginn sem 8. bekkingum býðst er til undirbúnings því að fara í framhaldsskólastærðfræði strax í 9. bekk, en sumir nemenda bæta henni við sig í 10. bekk.
Nemendur Landakotsskóla taka áfangana sem MH kennir á einni önn dreift yfir eitt ár. Þó nokkrir nemendur í 10. bekk, sem tóku fyrsta áfanga náttúrufræðibrautar MH á síðasta ári héldu nú áfram og tóku næsta áfanga. Þar með eru nokkrir nemendur í 10. bekk búnir með alla stærðfræði fyrsta árs menntaskólans.
