Fréttasafn
Keppnisandi á íþróttadegi
Það var annasamur miðvikudagur hjá unglingadeild en dagurinn byrjaði í KR-heimilinu þar sem nemendur kepptu í hreysti.
Þrír árgangar, sex bekkir, íslensku- og alþjóðdeildar háðu drengilega keppni í fótbolta, reipitogi, tímaskyni, ferning, bollapýramída og körfu. Þegar samanlögð stig dagsins voru talin sigraði 10. bekkur, 9th IDL var í öðru sæti og 9. bekkur í því þriðja.
Íþróttadegi lauk á hádegi en þá gátu nemendur farið heim og búið sig undir árshátíð sem var að þessu sinni með Hollywood þema og öll báru einnig andlitsgrímur.

FRÁBÆR Árshátíð!
Nemendaráð sá um allan undirbúning hátíðarinnar og það var fallega skreyttur salur sem mætti gestum á Nauthóli. Hann, hún og hán mættu til hátíðar hvert öðru glæsilegra og öll voru í hátíðarskapi.
Það mátti heyra margreynda kennara og ungmenni tala um að þetta hefði verið besta árshátíð skólans hingað til. Alla vega er óhætt að fullyrða að öll skemmtu sér vel og brugðu sér á dansgólfið, óháð aldri og hlutverki. Öll skemmtiatriði vöktu mikla lukku, frumsamin lög, snertileikur, matarsmökkun ofl. Salurinn ómaði svo af hlátri þegar 10. bekkur og 10th IDL sýndu sín myndbönd frá skólalífinu. Punkturinn yfir I var svo hr. Hnetusmjör sem tók rappið með stæl.
Það er óhætt að fullyrða að öll fóru sátt heim og allflest munu ylja sér við minninguna um þessa frábæru árshátíð, sem fyllti starfsfólk stolti og gleði yfir því að starfa með unglingum Landakotsskóla.


