Fréttasafn

INNRITUN OG UMSÓKNIR NEMENDA FYRIR HAUST 2026

INNRITUN OG UMSÓKNIR NEMENDA FYRIR HAUST 2026

18.02.2026

VEGNA INNRITUNAR Í 5 ÁRA BEKK Í LANDAKOTSSKÓLA

NAUÐSYNLEGT ER AÐ SÆKJU UM Í GEGNUM VÖLU. Innritun barna sem fædd eru árið 2021 og óskað er eftir plássi í 5 ára bekk þá þarf að sækja um með rafrænum skilríkjum hér á VÖLU: https://umsokn.vala.is/login. - Þetta þarf að gera jafnvel þótt þið hafið nú þegar sótt um á heimsíðu Landakotsskóla.- Við hvetjum alla sem hafa hug á að sækja um að gera það hið allra fyrsta.- Athugið að ekki er hægt að sækja um eftir 3. mars en þá lokar VALAN á meðan unnið er úr umsóknum til 1. april. Í mars kemur póstur frá okkur um staðfesta skólavist í gegnum Völu.

VARÐANDI SKRÁNINGU Í 1. BEKK Í LANDAKOTSSKÓLA

NAUÐSYNLEGT ER AÐ SÆKJU UM Í GEGNUM MIÐLÆGT UMSÓKNARKERFI Á island.is Börn fædd árið 2020 sem eiga að byrja í 1. bekk haustið 2026 verða að vera skráð sérstaklega í nýtt miðlægt umsóknarkerfi á island.is, jafnvel þótt barnið sé þegar í 5 ára bekk í Landakotsskóla. Skráning fer fram hér: https://island.is/umsoknir/grunnskoli

VARÐANDI SKRÁNINGU Í 2. -10. BEKK Í LANDAKOTSSKÓLA

NAUÐSYNLEGT ER AÐ SÆKJU UM Í GEGNUM MIÐLÆGT UMSÓKNARKERFI Á island.is Ef óskað er eftir flutningi í 2. - 10. bekk í Landakotsskóla þarf að sækja um sérstaklega í nýtt miðlægt umsóknarkerfi á island.isInnritun fer fram hér: https://island.is/umsoknir/grunnskoli. Taka má fram að það er laust pláss í einstaka bekki í Landakotsskóla.  

Engin ummæli enn
Leit