Fréttasafn
23. ágúst 2026
Sæl kæru foreldrar.
Fyrsti skóladagurinn var mjög ánægjulegur og gaman að sjá skólann fyllast af lífi. Nú þegar skólaárið er hafið er gott að minnast á aðkomu og innganga fyrir Landakotsskóla.
Inngangar:
Aðalinngangur skólans er við Túngötu 15, þar er opið allan daginn og starfsmaður í móttöku.
- Það er velkomið að koma inna um aðra innganga að morgni, NEMA inngang við matsal. Það er ekki ætlast til að gengið sé frá Hávallagötu að skólanum.
- Eftir klukkan 08:40, verður öllum öðrum inngöngum læst.
- Foreldrar sem koma að skólanum eftir lokun kl. 08:40, er beðnir um að tilkynna komu sína í móttöku við aðalinngang.
- Ef þú kemur í viðtal, fund, koma einhverju til barnanna ykkar eða til að sækja barn, farið um aðalinnganginn við Túngötu og tilkynnið komu ykkar og brottför í móttöku.
Aðkoma að skólanum:
- Mikilvægt er að rifja upp helstu umferðarrelgur sem börn þurfa að þekkja til að tryggja öryggi sitt í umferðinni. Eftirfarandi atriði eru mikilvæg fyrir öryggi barnanna:
- Notast skal við gangbrautarljósin eða merktar gangbrautir til að fara yfir götur.
- Að nemendum sé hleypt út úr bílum á bílastæðum kirkjunnar við Túngötu, ef þau eru keyrð í skólann (sjá mynd).
Vinsamlegat hafið eftirfarandi atriði í huga:
- EKKI hleypa nemendum út hinu megin við götuna (til að koma í veg fyrir að börn hlaupi yfir götuna, þar sem engin gagnbraut er).
- EKKI leggja í sleppistæðin fyrir framan skólann við Túngötu.
- EKKI leggja á móti umferð – það er ólöglegt og hættulegt.
- EKKI leggja í stæði sem er ætlað hreyfihömluðum.
- EKKI leggja stæði húsvarðar. Við þökkum ykkur fyrir góða samvinnu og stuðning við að skapa öruggt, hlýlegt og gott skólasamfélag fyrir börnin okkar.
Bestu kveðjur
Sigrún
Engin ummæli enn
