Fréttasafn
Norskir kennaranemar í Landakotsskóla
Astrid, Marthe, Kristin og Marthe eru ungir kennaranemar frá Noregi sem eru í æfingakennslu þessa og næstu viku í 7. bekkjum Landakotsskóla. Þær hafa þegar verið á Laugarvatni í tværi vikur.
Völdu Ísland umfram Suður-Afríku
Aðspurðar segja þær að á öðru ári fari kennaranemar í Noregi í skólaheimsóknir erlendis. Þær völdu að koma til Ísland en þær gátu valið milli Íslands, Danmerkur og Suður Afriku.
En af hverju varð Ísland fyrir valinu en ekki Suður Afríka? Þær vildu gjarnan kynnast kennslu á Íslandi, menningunni og njóta náttúrunnar. Það hafði líka áhrif á val þeirra að í Suður Afríku eru allt að 50 nemendur í hverjum bekk. Þeim langaði líka að vita hvort kennsla hér væri frábrugðin því sem gerist á hinum Norðurlöndunum.
Margt líkt með kennslu Norðurlandanna
Það hefur komið þeim á óvart hve lík kennslan er hér og í Noregi m.a.s. er þar eins og hér mikil samkennsla á landsbyggðinni auk þess sem bekkjarstærðir eru svipaðar hér og á hinum Norðurlöndunum. Ásamt því að kenna hafa þær notað tímann til að ferðast og skoða land og þjóð en þær nefna sérstaklega Gullna hringinn, Vík í Mýrdal og Snæfellsnes.
Þakklæti fyrir hlýjar móttökur
Aðspurðar um muninn á íslenskum nemendum og norskum segja þær íslenska nemendur betri eða það er sjálfstæðari í verkefnavinnu. Þær eru sammála um að allir hafi tekið mjög vel á móti þeim og þær vilja gjarnan koma á framfæri þökkum fyrir þann hlýhug, sem þær hafa mætt í hvarvetna.

